Catphan QA

 

Catphan QA er vefdrifið gæðamælingakerfi fyrir TS tæki. Mælingarnar byggja á TS myndum af Catphan prófunarlíkaninu frá The Phantom Laboratory.

  • Grunnhugmyndin að kerfinu er að notandi skanni prófunarlíkanið, hlaði myndunum upp á vefinn og fái birta vefskýrslu með niðurstöðum.
  • Kerfið býður upp á helstu gæðamælingar fyrir TS tæki, s.s.
    • sneiðþykkt
    • upplausn
    • einsleitni
    • birtuskil (e. contrast)
  • Vefskýrslan inniheldur mæliniðurstöður birtar í tölum, töflum og gagnvirkum gröfum
  • Vefskýrsluna má einnig fá sem prentvænt PDF skjal.
  • Vefumhverfið býður upp á að fleiri en einn notandi hlaði upp gögnum og skoði niðurstöður fyrir eitt eða fleiri tæki.
  • Öll mæligögn eru geymd í gagnagrunni á vefnum
  • Notendum gefst kostur á að fylgjast með mælingum yfir tíma
  • Þjónustan býður upp á að sendur sé tölvupóstur til notanda ef mælingar fara yfir fyrirfram skilgreind mörk.

Catphan QA er unnið í samvinnu við Image Owl og finna má nánari upplýsingar um kerfið hér.