Sumarið 2011 skipulögðu Geislavarnir ríkisins ráðstefnu Norræna geislavarnafélagsins (NSFS) sem haldin var í Reykjavík. Ráðstefnurit með tugum kynninga (munnleg erindi og veggspjöld) er aðgengilegt á vefsíðu félagsins. Efnið er fjölbreytt og áhugavert, meðal annars um læknisfræðilega notkun jónandi geislunar, geislun í umhverfi, viðbúnað við geislavá, og nýjustu tilskipanir ESB.