Opinn fyrirlestur Sir Davids Attenborough í Salnum í Kópavogi
Bókaforlagið Iðunn og Endurmenntun Háskóla Íslands standa fyrir opnum fyrirlestri Sir Davids Attenborough í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs, fimmtudaginn 6. nóvember n.k. klukkan 20:30. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir
David Attenborough er löngu heimskunnur fyrir sjónvarpsþætti og ritstörf um náttúruvísindi og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og heiður fyrir störf sín. Hann hefur alla tíð haft einstakt lag á að miðla þekkingu sinni af smitandi ástríðu og sameina fróðleik og skemmtan þannig að einstakt getur talist. Fyrirlestur Davids nefnist Uppgötvanir myndavélanna (Discovery of the Camera) og fjallar um þá margvíslegu tækni sem beitt er við gerð sjónvarpsþáttanna og hvernig þróun myndavélanna hefur leitt til nýrra uppgötvana. Fyrirlesturinn er studdur einstöku myndefni.
Sir David Attenborough heimsækir Ísland að þessu sinni í tengslum við útkomu bókarinnar Heimur spendýranna, sem Iðunn gefur út. Hann mun árita þessa nýju og glæsilegu bók fyrir þá sem þess óska, að loknum fyrirlestrinum, í sýningarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs, sem er tengd Salnum.
Bestu kveðjur
Starfsfólk Endurmenntunar Háskóla Íslands