Geislakeila – bikarkeppni myndgreiningarfólks í keilu – heldur áfram!!!
Starfsfólk röntgendeildar LSH í Fossvogi hefur tekið áskorun starfsmanna myndgreiningardeildar Hjartaverndar og fer næsti hluti keppninnar fram í keiluhöllinni í Öskjuhlíð miðvikudaginn 20. október, klukkan 20:00.
Allt myndgreiningarfólk er hvatt til að mæta á staðinn og fylgjast með spennandi keppni!